Kvörðunargeta

Fjölmælar
Neytendastofa býr yfir góðum tækjabúnaði til að kvarða helstu rafstærðir fyrir algenga fjölmæla, þ.e. straum, spennu, tíðni og viðnám. Hægt er að kvarða flestar gerðir 4-5 stafa fjölmæla. Einnig er hægt að kvarða stök viðnám, spennugjafa og straumgjafa með umtalsverðri nákvæmni, t.d. 0,1% eða minna fyrir straum og spennu.

Mæligrunnar okkar eru kvarðaðir hjá Sveriges Provnings- och Forskningsinstitut (SP) í Svíþjóð. Verklagsreglur við kvarðanir eru sniðnar eftir reglum European co-operation for Accreditation (EA) skjali EA-10/15, sem er nú viðhaldið af European Collaboration in Measurement Standards (Euromet).

Þrýstimælar
Neytendastofa býður upp á kvörðun þrýstimæla af ýmsum gerðum. Hún er gerð með því að setja gasþrýsting á mælinn og mæla þrýstinginn jafnframt með því að leggja hann á vel skilgreinda stimpla sem liggja á kraftmæli sem er landsmæligrunnur okkar fyrir þrýsting. Í eftirfarandi töflu sést geta Neytendastofu í hefðbundnum þrýstikvörðunum.

Mælisvið (afstæður þrýstingur)    Óvissa
-1 bar til 0 bar                                      0,1 %
0 bar til 120 bar                                   0,01 %

Mæligrunnur fyrir þrýsting er kvarðaður hjá DH Budenberg í Frakklandi.

Hitamælar
Neytendastofa býður upp á faggilta kvörðun frá -80°C til 550°C en ófaggilta kvörðun frá 550°C til 1100°C. Þessar kvarðanir eru gerðar með samanburði við mæligrunna í böðum eða ofni. Neytendastofa á einnig tvo fastapunkta ITS-90 hitakvarðans, þrífasapunkt vatns við 0,010(0)°C og bræðslumark gallíums við 29,764(6)°C og getur því kvarðað mæla mjög nákvæmlega við þau hitastig. Hægt er að fá flestar gerðir hitamæla kvarðaðar, s.s. glerhitamæla, viðnámshitamæla, hitatvinn sem og rafstærðir sjálfra hitanemanna. Ekki er fyrir hendi sérstakur búnaður til kvarðana á geislahitamælum. Í eftirfarandi töflu sést geta Neytendastofu á sviði hitakvarðana.

Á heimasíðu United kingdom Accreditation Service (UKAS) er hægt að finna upplýsingar um umfang faggildingarinnar með því að slá inn 0823 í reitinn undir „Laboratory number“.

Mælisvið                     Lágmarksóvissa
-80 til 240°C                    0,04°C
240 til 390°C                   0,35 °C
390 til 550°C                   0,90 °C 

Hitamæligrunnar okkar eru kvarðaðir í mælifræðistofnun Bretlands, National Physical Laboratory (NPL). Verklagsreglur Neytendastofu eru unnar með ráðgjöf frá NPL.

Lóð
Neytendastofa býður upp á faggilta kvörðun lóða frá 1 mg upp í 500 kg. Eftirfarandi tafla lýsir því hvaða lóðaflokka hægt er að kvarða, flokkað eftir þyngd lóðanna, M1 og F1 eru nákvæmnisflokkar lóða sem eru skilgreindir af OIML.

Mælisvið               Geta
1 mg - 20 kg           F1
50 - 100 kg            M1

Á heimasíðu UKAS er hægt að finna upplýsingar um umfang faggildingarinnar með því að slá inn 0823 í reitinn undir „Laboratory number“.

Grunnlóð okkar eru kvörðuð í Svíþjóð hjá SP. Verklagsreglur við kvarðanir eru sniðnar eftir reglum Organisation Internationale de Métrologie Légale (OIML) nr. R 111-1.
 
Lengd
Neytendastofa býður upp á kvörðun metrastika, rennimála og míkrómæla. Dæmi um kvörðunarnákvæmni er 0,4 mm, 0,01 mm og 0,005 mm fyrir ofangreinda mæla.

Mæliker
Neytendastofa kvarðar 5, 10, 25, 500, 1000 og 5000 lítra ker með hellingu en minni ker eru kvörðuð með vigtun. 25 lítra mæliker okkar er kvarðað í Svíþjóð hjá SP, en önnur mæliker okkar eru kvörðuð með 25 lítra kerinu eða með vigtun. Verklagsreglur eru sniðnar eftir reglum Physikalisch-Technischen Bundesanstalt (PTB) í Þýskalandi.

Óvissureikningur
Óvissureikningar við kvarðanir eru gerðir eftir leiðbeiningum frá faggildingarsamtökum Evrópu, European co-operation for Accreditation (EA), sjá skjal EA-4/02 .

Verð
Verð fyrir kvarðanir er reiknað samkvæmt vinnutímagjaldi, efniskostnaði, gjaldi vegna viðhalds faggildingar og hlutdeild í stjórnunarkostnaði.

Dæmi um verð:

 Mælitæki

 Fjöldi punkta

 Verð kr.  

 Hitamælir með nema 

 4-5 í 2-3 böðum

 15.855 

 Glerhitamælir fulldýfing

 4-5 í 2-3 böðum

15.855 

 Glerhitamælir hlutdýfing

  4-5 í 2-3 böðum

   18.120  

 Vog í flokki II með F1 lóðum ≤ 5 kg 

 10-20

 18.120  

 Vog í flokki III með M1 lóðum ≤ 500 kg

10

 18.120  

 500 kg M1 lóð

1

 27.180 

 1 kg F1 lóð

1

 18.120 

 F1 lóðasett með 15 lóðum ≤ 2 kg

15

 81.530 

 M1 lóðasett með 15 lóðum ≤ 2 kg

15

54.360 

 Fjölmælir (spenna, straumur, viðnám)

15

 14.000 

 Mæliker ≤ 20 lítra

 5

 14.000 

 Átaksskaft

 3

 14.000 

 Þrýstimælir

 5-8

14.000 

Verð miðast við stök mælitæki en tilboð eru gerð ef um marga mæla er að ræða. Ef kvarða þarf hjá viðskiptavini bætist ferðakostnaður og/eða akstur við.


Aukaval



Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli