Alferðir/pakkaferðir
Alferðir eru þær ferðir sem almennt eru kallaðar pakkaferðir og eru fyrirfram ákveðin samsetning tveggja eða fleiri þátta sem seldir eru saman á einu verði. Til dæmis getur verið um að ræða flug og gistingu innanlands eða utan eða hestaferð með gistingu.
Lögum um alferðir nr. 80/1994 er ætlað að tryggja neytendum vernd og gera kröfur til seljenda um að veita ýmsar upplýsingar við sölu á alferðum. Neytendastofa hefur eftirlit með framkvæmd laganna og reglugerð um alferðir nr. 156/1995.
Mikilvægt er að neytendur afli sér ítarlegra upplýsinga um allt sem ferðinni viðkemur áður en ferð er keypt. Meðal upplýsinga sem seljendur alferða verða að upplýsa neytendur um er:

- að ef verð sem sett er fram í samningi getur hækkað eða lækkað, s.s. vegna gengisbreytinga, verður það að koma fram og jafnframt þarf að tilgreina nákvæmlega hvernig breytt verð sé reiknað út. Síðustu tuttugu daga fyrir brottför má þó ekki hækka verð
- skilmálar sem gilda um afpantanir, en seljandi hefur heimild til að krefjast þóknunar þegar neytandi afpantar ferð
- möguleika til að tryggja neytendur gegn fjárhagslegu tjóni ef hætta þarf við ferðina
Þegar seljendur alferða auglýsa verð á ferðum sínum skal verðið:
- miðast við einstakling og verður það að koma fram þótt önnur tilboð komi fram í auglýsingunni
- miðast við einstakling í tveggja manna herbergi ef gisting er innifalin í verði
- innifela öll gjöld og skatta sem neytandi verður að greiða
Ef alferð hefur ekki staðist væntingar er hægt að kvarta við ferðaskrifstofuna sem fyrst eftir heimkomu. Náist ekki sættir við ferðaskrifstofu sem er í Samtökum ferðaþjónustunnar er hægt að snúa sér til úrskurðarnefndar Samtaka ferðaþjónustunnar og Neytendasamtakanna en nefndin er vistuð hjá Neytendasamtökunum.
Dæmi um ákvörðun Neytendastofu sem byggist á alferðalögum:
- Ákvörðun nr. 09/2006, hækkun alferðar