Misræmi í verðmerkingum á sölustað

Allar vörur í verslunum eiga að vera skýrt verðmerktar sbr. ákvæði laga um eftirlit með óréttmætum viðskiptaháttum og gagnsæi markaðarins nr. 57/2005 og reglur 725/2008.

Almenna reglan er að verslanir skulu selja vörur á því verði sem varan er verðmerkt á líka þótt um mistök sé að ræða. Þetta gildir þó ekki ef sjá má, eða það ætti að sjást, að um mistök er að ræða. Þá gildir þetta heldur ekki ef röng verðmerking er ekki sök fyrirtækisins heldur hafi t.d. annar viðskiptavinur breytt verðmerkingu eða fært vörur til.

Fyrir kemur að misræmi sé í verðmerkingum, t.d. á milli verðs á hillubrún og verðs í afgreiðslukassa. Matvöruverslanir fylgja því t.d. almennt að neytendur fái vörur á því verði sem fram kemur í hillu sé ósamræmi á milli þess verðs og í afgreiðslukassa. Byggist þetta á því að neytendur velja vöruna á grundvelli verðmerkingarinnar en ekki á grundvelli verðs í afgreiðslukassa enda hafa neytendur engin tök á því að sjá það verð fyrr en komið er að því að greiða vöruna.


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli