Auglýsingar

Í lögum nr. 57/2005 um eftirlit með viðskiptaháttum og markaðassetningu er að finna ýmis ákvæði um auglýsingar.  Aðalreglan um auglýsingar er sú að í þeim er óheimilt að veita rangar, villandi eða ófullnægjandi upplýsingar.  Þá mega auglýsingar ekki vera ósanngjarnar gagnvart neytendum eða keppinautum. 

Samanburðarauglýsingar sem eru auglýsingar þar sem beint eða óbeint er vísað til keppinauta eru leyfðar að uppfylltum ákveðnum skilyrðum.  Auglýsingarnar mega ekki vera villandi og samanburðurinn verður að taka til vöru eða þjónustu sem fullnægir sömu þörfum eða eru ætlaðar til sömu nota svo nokkur dæmi séu tekin.

Sú krafa er gerð að auglýsendur geti fært sönnur á allt það sem fram kemur í auglýsingum, s.s. um gæði og áhrif þeirra vara sem auglýstar eru eða þegar því er haldið fram að eitthvað sé best eða mest.  Auglýsingar sem innihalda ósannar fullyrðingar gefa neytendum rangar og villandi upplýsingar.  Sönnunarbyrðin hvílir þannig á auglýsandanum sem verður að tryggja að allar forsendur fullyrðinga sem birtast eiga í auglýsingum liggi fyrir áður en ráðist er í gerð auglýsinga. Ekki er nægjanlegt að taka til við að afla gagna eftir að athugasemdir berast við auglýsingar.  Geti auglýsandi ekki sýnt fram á að fullyrðingarnar séu réttar brjóta auglýsingarnar í bága við ákvæði laganna og getur Neytendastofa lagt fyrir fyrirtæki að breyta auglýsingum, bannað birtingu þeirra og sektað. 

Í lögunum er einnig kveðið á um að auglýsingar eigi að vera á íslensku og þannig gerðar að ekki leiki vafi á að um auglýsingar sé að ræða.  Auglýsingar eiga því að vera skýrt aðgreindar frá öðru efni fjölmiðla.

Dæmi um ákvarðanir Neytendastofu (áður samkeppnisráðs) þar sem auglýsanda hefur verið gert að færa sönnur á fullyrðingar auglýsinga:
 
  • Ákvörðun nr. 2/2006, Kvörtun Kynnisferða ehf. yfir auglýsingum Iceland Excursion Allrahanda ehf.
  • Ákvörðun nr. 1/2006, Auglýsingar Nóatúns „bestir í fiski“
  • Ákvörðun nr. 29/2004, Auglýsingar Bensínorkunnar ehf.
  • Ákvörðun nr. 3/2004, Slagorð Hagkaupa hf. „Þar sem Íslendingum finnst skemmtilegast að versla“ og „Skemmtilegast að versla“
  • Ákvörðun nr. 35/1998, Kvörtun Skeljungs hf. yfir auglýsingum Olíufélagsins hf. á „bestu dísilolíunni“
  • Ákvörðun nr. 40/1997, Notkun efsta stigs lýsingarorða í auglýsingum Tæknivals hf.
  • Ákvörðun nr. 5/1997, Auglýsingar Bræðranna Ormsson ehf. um „mest seldu hljómflutningstæki á Íslandi“

Í gildi eru reglur nr. 21/1995 um verðupplýsingar í auglýsingum þar sem m.a. segir að þegar afborgunarkaup séu auglýst skuli bæði staðgreiðsluverð og heildarverð með vöxtum og kostnaði koma fram. Jafnframt hafa verið gefnar út leiðbeinandi reglur um auglýsingar og umhverfisvernd nr. 559/1994.  Reglurnar eru samdar með auglýsendur og auglýsingastofur í huga og þar eru settar fram leiðbeiningar um hvers konar upplýsingar er æskilegt að gefa í auglýsingum þegar fjallað er um áhrif sem vara og framleiðsla hefur, eða getur haft, á umhverfið.


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli