Börn og auglýsingar

Í 7. gr. laga um eftirlit með viðskiptaháttum og markaðssetningu nr. 57/2005 er að finna ákvæði um börn og auglýsingar.  Þar kemur fram að auglýsingar verða að miðast við að börn sjái þær og heyri og mega þær ekki misbjóða börnum.  Þá þarf að sýna sérstaka varkárni vegna trúgirni barna og unglinga.  Komi börn fram í auglýsingum verður einnig að gæta þess að þau taki ekki þátt í hættulegu atferli sem geti leitt til þess að þau eða önnur börn komist í hættu eða geri eitthvað það sem er óheimilt.

Þannig má auglýsa vörur fyrir börn og börn mega koma fram í auglýsingum en taka þarf sérstakt tillit til þeirra. Þá verða börn sem koma fram í auglýsingum að vera eðlilegur þáttur í því umhverfi sem er sýnt.

N
eytendastofa setur jafnframt þá kröfu á auglýsendur að markpóstur sé ekki sendur á börn heldur forráðamenn þeirra sem síðan velja hvort börnunum verði kynnt það sem þar kemur fram.

Á árinu 1992 tók þáverandi Verðlagsstofnun og umboðsmenn neytenda á Norðurlöndum þátt í gerð sameiginlegra stefnumarkandi reglna um sjónvarpsauglýsingar.  Sjöunda grein reglnanna fjallar um börn og auglýsingar.  Þar er meðal annars fjallað um áhrifagirni barna og unglinga og að ekki megi hvetja þau til að hafa áhrif á aðra um kaup á vöru eða þjónustu.  Ekki megi heldur gefa börnum og unglingum óraunhæfar hugmyndir um verðmæti vara.  Um þátttöku í auglýsingum segir að börn megi einungis koma fram í auglýsingum séu þau eðlilegur þáttur í því umhverfi sem er sýnt eða til að sýna notkun vöru eða þjónustu. 

Dæmi um ákvarðanir Neytendastofu (áður samkeppnisráðs) þar sem 8. gr. laga um óréttmæta viðskiptahætti og gagnsæi markaðarins hefur verið beitt: 
  • Ákvörðun nr. 15/2005, Auglýsingar Umferðarstofu
  • Ákvörðun Samkeppnisstofnunar nr. 1/2002, Auglýsing Allianz – Ísland hf.
  • Ákvörðun nr. 38/1998, Auglýsingar útvarpsstöðvarinnar X-ins FM97,7
  • Ákvörðunnr. 33/1998, Auglýsingar Heklu hf. „Með allt á hreinu“

Til viðbótar þessu sem hér er talið er fjallað um börn og auglýsingar í eftirfarandi reglum:

  • í reglugerð um útvarpsstarfsemi nr. 50/2002 fjallar 13. gr. um auglýsingar og börn
  • í reglugerð um auglýsingar í útvarpi nr. 611/1989 er í annarri grein m.a. að finna ákvæði um börn og auglýsingar
  • í siðareglum Sambands íslenskra auglýsingastofa er í 13. gr. að finna ákvæði um börn og unglinga 
  • Alþjóða viðskiptaráðið hefur í ýmsum siðareglum lagt línur um börn, unglinga og auglýsingar. Hér er að finna samantekt ráðsins um þær reglur sem í gildi eru.

Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli