Ókeypis, frítt og gjöf
Í auglýsingum og kynningum eru gjarnan notuð orð eins og þau að neytendur fái vöru eða þjónustu að gjöf kaupi þeir einhverja aðra vöru eða þjónustu. Á sama hátt er auglýst að neytendur fái vöru ókeypis eða fría þegar í reynd þarf að greiða fyrir aðra vöru til að fá fríu eða ókeypis vöruna.
Auglýsingar þar sem slík orð eru notuð eru villandi þurfi neytendur að greiða fyrir vöru eða þjónustu til að fá fríu eða ókeypis vöruna eða gjöfina. Auglýsingarnar brjóta í bága við ákvæði laga um eftirlit með viðskiptaháttum og markaðassetningu nr. 57/2005.
Þessi túlkun Neytendastofu byggist á því að á árinu 1993 kvað Hæstiréttur upp dóm í máli nr. 347/1990, Myndsýn hf. gegn samkeppnisráði. Málið snerist um að Myndsýn auglýsti að við filmuframköllun hjá fyrirtækinu fengist jafnframt ókeypis filma. Verðlagsráð bannaði Myndsýn notkun orðsins ókeypis í þessu samhengi. Í dómi Hæstaréttar kemur fram að hlutur sé ókeypis ef hann sé látinn af hendi án endurgjalds eða skuldbindingar. Þegar orð eins og ókeypis sé notað yfir reglubundinn þátt í starfsemi fyrirtækis sé kostnaður við ókeypis vöruna aftur á móti innifalinn í því verði sem greitt sé fyrir aðra vöru. Með því að auglýsa að vara fáist ókeypis sé verið að gera lítið úr kostnaðarþætti í þeim tilgangi að hafa áhrif á eftirspurn eftir annarri vöru og slíkt sé villandi.
Ekki eru gerðar athugasemdir við það þegar auglýst er að ein vara fylgi annarri eða að eitthvað sé innifalið þegar vara er keypt.
Dæmi um ákvarðanir Neytendastofu (áður samkeppnisráðs) þar sem auglýsanda hefur verið bannað að auglýsa að þjónusta fáist án kostnaðar:

- Ákvörðun nr. 28/2004, Kvörtun Og fjarskipta hf. yfir notkun Landssíma Íslands hf. á orðunum frítt, ókeypis og gjaldfrjálst
- Ákvörðun nr. 27/2004, Kvörtun Landssíma Íslands hf. yfir notkun Og fjarskipta hf. á orðinu frítt í auglýsingum