Rangt verð í auglýsingum

Oft koma upp spurningar um hvort neytendur eigi rétt á að fá vörur á því verði sem fyrirtæki auglýsa í þeim tilvikum sem rangt verð hefur verið tilgreint, t.d. í auglýsingabæklingum sem sendir eru heim til neytenda.

Verð í auglýsingum á að vera rétt og samræmi þarf að vera á milli myndar og verðs svo ekki sé brotið í bága við ákvæði laga um eftirlit með viðskiptaháttum og markaðassetningu nr. 57/2005.

Verð í auglýsingum og bæklingum er aftur á móti ekki bindandi. Sé vara auglýst á of lágu verði, t.d. vegna prentvillu, á neytandi ekki rétt á að fá vöruna á því verði ef seljandi upplýsir um villuna áður en viðskiptin eiga sér stað. Það er því ekki hægt að krefjast þess að kaupa vöru eða þjónustu á verði sem fram kemur í auglýsingu. Að gefa upp rangt verð af ásetningi brýtur þó í bága við lög og getur neytandinn krafist bóta.

Ekki er gerð krafa um að verð komi fram í auglýsingum. Sé verð gefið upp í auglýsingum þarf m.a. að fara að reglum um verðupplýsingar í auglýsingum nr. 21/1995. Eitt helsta atriðið í reglunum er að auglýst verð á alltaf að vera endanlegt verð til neytenda. Þetta þýðir til dæmis að virðisaukaskattur á að vera innifalinn í auglýstu verði. Sé vara auglýst með afborgunarkjörum á bæði staðgreiðsluverð og heildarverð með vöxtum og kostnaði að koma fram.


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli