Tilboðsvaran uppseld

Engar reglur eru til um hversu mörg eintök þurfa að vera til af vöru sem auglýst er á tilboðsverði.

Um mjög mismunandi vörur getur verið að ræða og því erfitt að setja reglur um að ákveðinn lágmarksfjöldi þurfi að standa neytendum til boða hverju sinni.  Varan þarf samt sem áður ótvírætt að hafa verið til sölu á tilboðsverðinu.  Sé um mjög lítið magn að ræða þyrfti slíkt að koma fram til að auglýsingin teljist ekki villandi.  

Þ
að væri til mikilla hagsbóta fyrir neytendur ef verslanir tækju fram hversu mörg eintök væru á tilboði og jafnframt myndi það forða verslunum frá óánægðum viðskiptavinum sem jafnvel hafa farið um langan veg til að kaupa vörur á góðu verði. Rétt er þó að taka fram að einstaka verslanir tiltaka fjölda eintaka sem seld eru á tilboði og er það gott.

Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli