Útsala og tilboð

Um útsölur og tilboð er fjallað í 11. gr. laga nr. 57/2005 um eftirlit með viðskiptaháttum og markaðssetningu. Þar segir að óheimilt sé að auglýsa eða tilkynna útsölu eða aðra sölu, þar sem selt er á lækkuðu verði, nema því aðeins að um raunverulega verðlækkun sé að ræða.  Þá er einnig kveðið á um það að verðmerkingin þurfi greinilega að sýna hvert upprunalegt verð vörunnar var.  

Tilgangurinn með lagagreininni er að koma í veg fyrir að neytendur séu blekktir og að þeir geti áttað sig á verðmuninum.  Verðlækkun verður þannig að felast í því að seljandi bjóði vöru á lægra verði en hann selur sams konar vöru venjulega á. Hafi verð verið hækkað í þeim tilgangi að geta síðan lækkað það myndi slíkt brjóta í bága við ákvæði lagagreinarinnar.

Sama regla kemur einnig fram í reglum um útsölur og aðra sölu þar sem selt er á lækkuðu verði, nr. 366/2008, auk þess sem þar kemur fram að seljandi verði að geta sannað að vara eða þjónusta hafi verið seld á því verði sem tilgreint er sem fyrra verð.

Í reglunum eru ýmsar nánari reglur sem seljendur bera að virða við útsölur s.s. þær að þegar veittur er prósentuafsláttur reiknast hann af fyrra verði og skal þá tekið fram hvert sé fyrra verð og hvert prósentuhlutfall lækkunarinnar sé. Ef afsláttur er aukinn á meðan á útsölu stendur skal koma skýrt fram hvort hinn aukni afsláttur reiknist frá upphaflegu verði eða lækkuðu verði.

Útsala má ekki standa lengur en í sex vikur.

Dæmi um ákvörðun Neytendastofu (áður samkeppnisráðs) vegna útsölu: 

  • Ákvörðun nr. 06/1997, Auglýsing Japis hf. á stórútsölu

Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli