Slys af völdum raftækja
Neytendastofa hefur annast markaðseftirlit með rafmagnstækjum og tekur á mót innlendum og erlendum ábendingum um rafmagnstæki sem neytendum stafar hætta af eða sem grunur leikur á að uppfylli ekki öryggiskröfur sem framleiðendum er skylt að fylgja samkvæmt lögum, reglugerðum og evrópskum stöðlum sem gilda um framleiðslu rafmagnstækja.
Það er athyglisvert hversu stór hluti tjóna vegna rafmagns stafar af rangri notkun tækja sem hefði mátt forðast eða gáleysi neytenda. Árangri á því sviði verður helst náð með fræðslu og upplýsingastarfi. Miðað við þann skaða sem samfélagið ber af rafmagnsbrunum er ljóst að fjármunum sem varið er til markaðseftirlits raffanga er vel varið.
Neytendastofa er aðili að samtökum rafmagnsöryggisstofnana á Norðurlöndum, Nordisk komité for samordning av elektriske sikkerhetsspörsmål (NSS). Innan samtakanna er starfandi samstarfshópur „NSS Analyse“ sem sér um samræmda skráningu slysa og tjóna af völdum rafmagns.
Samnorræn skilgreining á rafmagnsbruna er:
Sérhvert atvik, þar sem rafstraumur hefur beint eða óbeint orsakað bruna, sem leiðir til tjóns á eignum eða slysa á fólki er rafmagnsbruni. Til þess að um rafmagnsbruna sé að ræða þarf rafmagnshluti þess búnaðar sem olli brunanum einnig að hafa valdið tjóni á öðrum búnaði.
Samnorræn skilgreining á rafmagnsslysi er:
Sérhvert atvik þar sem rafstraumur hefur valdið því að einstaklingur hefur beint eða óbeint slasast af ljósboga eða við að fá rafstraum í gegnum sig.