Markaðssetning vöru
Framleiðendur, innflytjendur og aðrir seljendur vöru bera ábyrgð á að hún uppfylli öll skilyrði sem um markaðssetningu hennar gilda.
Öryggissvið Neytendastofu annast opinbera markaðsgæslu raffanga, leikfanga og persónuhlífa til einkanota, auk almennrar neytendavöru sem ekki gilda um sérreglur eða er á ábyrgð annarra eftirlitsstjórnvalda. Það fylgist með vörum á markaði, aflar á skipulegan hátt upplýsinga um þær og tekur við ábendingum frá neytendum og öðrum aðilum.
Faggiltar skoðunarstofur annast, í umboði Neytendastofu, framkvæmd skoðana á markaði í samræmi við gildandi samning, verklagsreglur og skoðunarhandbækur Neytendastofu.
Það er einnig hlutverk Neytendastofu í opinberri markaðsgæslu að annast heildarskipulag opinberrar markaðsgæslu í samvinnu við önnur eftirlitsstjórnvöld með það að markmiði að tryggja hagkvæmni og samhæfingu. Neytendastofu ber einnig að samhæfa aðgerðir eftirlitsstjórnvalda ef eiginleikar vöru eða vöruflokks eru slíkir að ábyrgð á markaðseftirliti er í höndum fleiri en eins eftirlitsstjórnvalds.