Byggingarvörur
Í byggingarreglugerð, nr. 441/1998, er m.a. kveðið á um hlutverk hönnuða, byggingarfulltrúa og byggingarstjóra. Þar kemur m.a. fram að hlutverk þessara aðila er að ganga úr skugga um að byggingarvörur sem notaðar eru í þær byggingar sem þeir bera ábyrgð á, með einum eða öðrum hætti, uppfylli kröfur. Verði þeir varir við að byggingarvörur uppfylli ekki kröfur eða telji þær hættulegar ber þeim að koma ábendingu þar að lútandi til Neytendastofu sem fer með markaðseftirlit með byggingarvörum og getur gripið til viðhlítandi aðgerða.
Tilskipun um byggingarvörur
Tilskipun um byggingarvörur, „Construction Products Directive“ (CPD), nr. 89/106/EEC með síðari breytingum, var sett af Evrópusambandinu árið 1989 og er ein af fyrstu nýaðferðatilskipunum sambandsins. Megintilgangurinn með hinni nýju aðferð er að eyða tæknilegum viðskiptahindrunum milli aðildarlanda Evrópska efnahagssvæðisins (EES) og tryggja frjálst flæði vöru á innri markaðnum. CE-merkingin á að tryggja þetta frjálsa flæði vörunnar og er því eins konar „vegabréf“ hennar á EES.
Tilskipun um byggingarvörur er frábrugðin öðrum nýaðferðartilskipunum að því leyti að samhæfðir evrópskir staðlar eða evrópsk tæknisamþykki (ETA) eru forsenda CE-merkingar. Grunnkröfur eru hins vegar forsenda CE-merkingar í öðrum nýaðferðartilskipunum og staðlar til frjálsra nota. Helsta ástæða þessa er að grunnkröfur tilskipunar um byggingarvörur eiga ekki bara við um vörurnar sjálfar heldur einnig um mannvirki sem nota á vörurnar í, þ.e. taka verður tillit til aðstæðna í hverju landi. Meðal annars af þessum sökum hefur vinna við gerð tækniákvæða gengið hægt og enn vantar nokkuð á að slík ákvæði séu til fyrir allar byggingarvörur. Þetta stendur þó til bóta og fleiri tækniákvæði fyrir byggingarvörur taka gildi á næstu misserum.
Tækniákvæði
Með tækniákvæðum er átt við samhæfða evrópska staðla eða viðmiðunarreglur, ETAG, um útgáfu evrópskra tæknisamþykkta (ETA). Evrópsk tækniákvæði taka oft á eiginleikum sem ekki falla endilega undir reglur í aðildarlöndunum. Af þessum sökum innihalda öll tækniákvæði undir tilskipun um byggingarvörur nokkurskonar gátlista fyrir CE-merkingu þar sem framleiðendur geta séð hvaða kröfur gilda fyrir þeirra vörur og hvernig eigi uppfylla þær.