Skoðunarstofur
Óháðar faggiltar skoðunarstofur annast framkvæmd markaðseftirlits hér á landi að svo miklu leyti sem unnt er. Þannig er skilið á milli stjórnsýsluþáttar eftirlitsins sem Neytendastofa hefur með höndum og framkvæmdar þess eftirlits sem skoðunarstofur sinna í umboði Neytendastofu.
Faggiltri skoðunarstofu er heimilt, að fengnu starfsleyfi eða umboði frá Neytendastofu, að annast skoðanir, rannsóknir, eftirlit og úttektir á sviði markaðseftirlits eða löggildingu mælitækja samkvæmt samningi sem gerður er til lengri eða styttri tíma.
Neytendastofa veitir umboð til reksturs skoðunarstofa á svið mælifræði og markaðseftirlits.
- Að skoða rafföng á markaði.
Skoðunarstofa skal fullnægja kröfum um hlutleysi þriðja aðila, eins og þær eru í reglugerð um starfsemi faggiltra óháðra skoðunarstofa. Skoðunarstofur með starfsleyfi Neytendastofu:
| Skoðunarstofa | Heimili | Staður | Sími | Veffang |
| Frumherji hf. | Hesthálsi 6-8 | 110 Reykjavík | 570 9270 | www.frumherji.is |
| Rafskoðun ehf. | Hólmaslóð 4 | 101 Reykjavík | 551 4500 | www.rafskodun.is |
| Aðalskoðun hf. | Hjallahrauni 4 | 220 Hafnarfjörður | 555 3355 | www.adalskodun.is |
Frumherji hf. og Rafskoðun ehf. hafa starfsleyfi á eftirfarandi starfssviðum:
- Að skoða virki með málspennu yfir 1000 V riðspennu eða 1500 V jafnspennu.
- Að skoða virki með málspennu til og með 1000 V riðspennu eða 1500 V jafnspennu.
- Að skoða öryggisstjórnunarkerfi rafveitna og framkvæmd öryggisstjórnunar.
- Að skoða öryggisstjórnunarkerfi rafverktaka og framkvæmd öryggisstjórnunar
- Skoðun á aðstöðu og búnaði rafverktaka.