Fjármál

Neytendastofa er opinber stofnun sem fylgir fjárlagaferli stjórnvalda við gerð fjárlaga hverju sinni. Sérstök ráðherranefnd um ríkisfjármálin gegni lykilhlutverki við allar helstu ákvarðanir um fjárlagagerðina og ríkisfjármálastefnuna. Hvert ráðuneyti ber síðan ábyrgð á því að bæði undirbúningur og framkvæmd fjárlaganna samrýmist settum útgjaldarömmum.

Forgangsröðun og útfærsla fjárveitinga til verkefna innan rammanna er jafnframt á hendi ráðuneytanna. Stofnanir geta lagt fjárlagaerindi fyrir sín fagráðuneyti eftir því sem ástæða er til en svigrúmi ráðuneyta til að verða við þeim eru settar skorður af útgjaldarömmunum. Nánari upplýsingar er að finna á vef fjármálaráðuneytisins.

Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli