Starfsmannamál

Markmið starfsmannastefnu Neytendastofu er að hafa yfir að ráða hæfu, vel menntuðu og áhugasömu starfsfólki sem axlar ábyrgð, sýnir frumkvæði í starfi og tekur þannig virkan þátt í framþróun stofnunarinnar.

Starfsmannastefnunni er ætlað að vera til hvatningar og upplýsinga fyrir starfsmenn Neytendastofu. Neytendastofa kappkostar að búa starfsmönnum sínum góð starfsskilyrði, auka færni þeirra og efla starfsanda á vinnustað. Þannig sinnir stofnunin best hlutverki sínu og margþættum og breytilegum verkefnum. Neytendastofa telur að markmiðum stofnunarinnar verði best náð með framsækinni starfsmannastefnu. Neytendastofa hefur einnig sett sér jafnréttisáætlun. Stofnanasamningur Neytendastofu við BHM, KTÍ og SV og var undirrritaður 8. desember 2006. Stofnanasamningur við SFR var undirritaður 12. apríl 2006. 

Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli