Í samræmi við ákvæði í lögum sem Neytendastofa framfylgir ber henni að taka ýmiss konar ákvarðanir um rétt eða skyldu manna. Framangreindar ákvarðanir geta verið t.d. veiting starfsleyfis, s.s. löggilding rafverktaka eða vigtarmanns eða úrskurður um brot á lögum sem t.d. getur falið í sér bann við athöfn, afturköllun starfsleyfis, beitingu sekta o.fl. Í ýmsum tilvikum er unnt að skjóta stjórnsýsluákvörðunum Neytendastofu til áfrýjunarnefndar neytendamála en um málsmeðferð mála fer samkvæmt ákvæðum í stjórnsýslulögum nr. 37/1993 svo og ákvæðum í hlutaðeigandi sérlögum eða reglugerðum, eftir því sem við getur átt.