Gæðamál
Neytendastofa byggir starfsemi sína á virkri gæðastjórnun. Í starfsemi Neytendastofu er gæðakerfið notað til að tryggja að unnið sé faglega og á samræmdan hátt að þeim verkefnum sem stofnunin ber ábyrgð á. Heildargæðakerfið miðar að því að uppfylla kröfur ÍST EN ISO 9001:2000. Til viðbótar framangreindum staðli hefur Neytendastofa hlotið faggildingu bresku faggildingarstofunnar United Kingdom Accreditation Service (UKAS) á þeim hlutum gæðakerfisins sem eiga við um kvörðunarþjónustu mælifræðisviðs samkvæmt staðlinum ÍST EN ISO 17025.
Í gæðastefnu Neytendastofu er að finna nánari upplýsingar um markmið gæðastjórnunar hjá stofnuninni.
Skjalastjórnun
Neytendastofa notar rafræna skjalastjórnun en um skjalavistunarkerfi hennar, skjalageymslur, skilaskyldu skjala o.fl. fer samkvæmt ákvæðum laga nr. 66/1985 um Þjóðskjalasafn Íslands.
Tölvu- og kerfisstjórn
Öryggisstjóri ber ábyrgð á og hefur umsjón með öryggi gagna- og upplýsingakerfa og aðgangsstjórnun húsnæðis hjá Neytendastofu. Allir starfsmenn bera ábyrgð á að koma upplýsingum eða ábendingum um öryggismál til umsjónarmanns öryggismála og fylgja reglum stofnunarinnar í hvívetna.
Síminn annast hýsingu á rafrænni þjónustugátt Neytendastofu og ber ábyrgð á öryggi þeirra gagna í samræmi við lög og samninga þar að lútandi.