Hagsmunaaðilar
Hlutverk Neytendastofu er m.a. að stuðla að því að öryggi og réttindi neytenda séu þekkt og virt. Virk og góð samskipti við hagsmunasamtök í atvinnulífi og neytenda eru því mikilvæg svo að framangreindu markmiði verði náð.
Helstu hagsmunaaðilar eru Samtök atvinnulífsins, Samtök iðnaðarins, Samtök atvinnurekenda í raf- og tölvuiðnaði, Samtök ferðaþjónustunnar, Neytendasamtökin, Samtök verslunar og þjónustu, Félag íslenskra stórkaupmanna og Félag íslenskra bifreiðaeigenda.