Hlutverk
Hlutverk Neytendastofu er að treysta öryggi og réttindi neytenda í viðskiptum og annast framkvæmd laga um neytendavernd. Góð þekking á reglum um öryggi og réttindi neytenda er undirstaða þess að hámarks árangri verði náð í viðskiptum fyrirtækja og fagmanna við neytendur. Ánægja viðskiptavina og góð neytendavernd er allra hagur. Hlutverk Neytendastofu er því að stunda upplýsingamiðlun til aðila í atvinnulífi um skyldur þeirra og réttindi gagnvart neytendum.
Virkt eftirlit Neytendastofu felst einnig í því að tekið er við ábendingum ef fyrirtæki og fagmenn uppfylla ekki skyldur lögum samkvæmt eða réttindi neytenda eru ekki virt samkvæmt þeim lögum sem stofnunin hefur eftirlit með. Á grundvelli ábendinga um ætluð brot á lögum á málefnsviði sínu getur Neytendastofa beitt viðurlögum s.s. stjórnvaldssektum, sölubanni eða afturköllun á vöru ef brot eru alvarleg eða hætta er á heilsutjóni.
Neytendastofa stuðlar að fræðslu til neytenda um öryggismál svo og réttindi þeirra og skyldur í viðskiptum. Neytendastofa annast einnig eftirlit með því mælingar í viðskiptum séu réttar og að mælitæki séu löggilt þegar það á við.