Rafræn Neytendastofa
Neytendastofa auðveldar viðskiptamönnum stofnunarinnar að nálgast upplýsingar og þjónustu með því að opna rafræna þjónustugátt. Hér geta viðskiptamenn lagt inn ábendingar til Neytendastofu. Jafnframt er stefnt að því að hún hafi að geyma yfirlit um erindi og stöðu mála sem viðskiptamaður hefur óskað eftir að séu tekin til meðferðar. Með innskráningu á þjónustugátt Neytendastofu fá viðskiptamenn því aðgang að yfirliti um stöðu erinda hjá Neytendastofu.
- Nafnlausar ábendingar
Ábendingu er unnt að senda nafnlaust til Neytendastofu og þær geymast ekki í þjónustugátt viðskiptamanns. Þar sem slíkar ábendingar eru án allra upplýsinga um sendanda fær viðkomandi ekki svar við nafnlausum ábendingum. - Ábendingar með nafni
Ábendingar skráðra viðskiptamanna varðveitast á síðum hans og þangað berast tilkynningar um afgreiðslu mála. Skráðir viðskiptamenn geta einnig farið fram á við Neytendastofu að með ábendingu verði farið sem trúnaðarmál svo fremi beiðnin byggist á 16. eða 17. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 eða 4. – 6. gr. upplýsingalaga nr. 50/1996. Það þýðir að þriðji maður t.d. aðili sem ábending beinist gegn, veit ekki hver kom ábendingunni á framfæri. - Umsóknareyðublöð
Unnið er að þróun eyðublaða sem unnt er að senda í gegnum þjónustugáttina. Allar slíkar umsóknir eru vistaðar á síðum viðskiptavinar í gáttinni.