Stefna

Öryggi og réttindi neytenda eru tryggð í lögum frá Alþingi. Upplýsingar og fræðsla til aðila í atvinnulífi og almennings um réttindi og skyldur stuðlar að virðingu og góðri framkvæmd á lögum er miða að öryggi og vernd neytenda. Stjórnvaldsúrræðum ska beitt aðeins þegar nauðsyn krefur svo unnt sé að tryggja lögvarin réttindi neytenda varðandi öryggismál og neytendavernd almennt.

Neytendastofa og stjórnun hennar byggir á aðferðum árangursstjórnunar eins og fram kemur í árangursstjórnunarsamningi Neytendastofu og iðnaðar- og viðskiptaráðuneyta dags. 5. janúar 2007. Við stjórnun Neytendastofu er leitast við að beita aðferðum árangursstjórnunar og hefur hún gert yfirlit um stefnumiðaða árangursstjórnun sem fært verður í eiginlegt skorarkort eigi síðar en 1. júní 2007. Starfsemi stofnunarinnar hefur verið greind út frá fjórum sjónarhornum, þ.e. stjórnun og þjónustu, fjármálum og rekstri, innra ferli og mannauði og verður byggt á þeirri greiningu við gerð skorarkorts fyrir starfsemi Neytendastofu.

Neytendastofa hefur ákveðið skýr stefnumið á helstu starfssviðum sínum:

Stjórnsýsla
Reglur eiga að vera skýrar og virk úrræði skulu tryggð ef og þegar þörf krefur.
Stjórnsýslusvið Neytendastofu hefur umsjón með almennum rekstri stofnunarinnar, annast yfirumsjón lögfræðilegra málefna svo og útgáfu-og kynningarmála. Áhersla er lögð á að meðferð við úrlausn mála þeirra sem leita til Neytendastofu sé fagleg og eins skjótvirk og aðstæður leyfa hverju sinni. Neytendastofa hefur lögum samkvæmt margvísleg úrræði til að knýja aðila á markaði til þess að framfylgja þeim lögum og reglum sem gilda á sviði neytendaverndar. Neytendastofa getur beitt til dæmis dagsektum, stjórnvaldssektum, afturköllun vöru af markaði eða ákveðið sölubann á tiltekna vöru. Til að framangreindum áherslum verði náð er nauðsynlegt að Neytendastofa taki virkan þátt í þróun löggjafar á starfssviðum sínum og aðstoði stjórnvöld við að gera lög og reglur á starfssviðum hennar eins skýrar og úrræðin eins virk og unnt er.

Mælifræði og mælingar
Mælingar skuli vera réttar og mælitæki löggilt.
Til þess að ná því markmiði að allar mælingar á Íslandi séu réttar þá verður að vera tryggt að við kvörðun mælitækja sé ávallt tryggður fullkominn rekjanleiki þeirra mæligrunna sem kvörðun byggir á hverju sinni. Á Íslandi varðveitir t.d. Neytendastofa kílógrammið og tryggir hún auk þess að það sé ávallt rétt með því að senda það reglulega til athugunar hjá æðri mælifræðistofnun í Evrópu. Auk þess að tryggja aðgengi og áreiðanleika mæligrunna hér á landi hefur Neytendastofa umsjón með því að lögbundið eftirlit með mælitækjum fari fram og að þau séu ávallt löggilt í samræmi við lög og reglur sem sett eru samkvæmt þeim.

Réttindi neytenda
Réttindi neytenda séu þekkt og virt.
Í viðskiptum er staða neytenda við verslanir og aðra fagmenn á sviði viðskipta yfirleitt veikari enda hafa verslanir og fagmenn yfirleitt á sínum snærum sérfræðinga sem semja einhliða viðskiptaskilmála o.fl. sem neytendum ber að hlíta í viðskiptum. Alþingi hefur sett ýmis lög sem tryggja eiga rétt neytenda í samningum um viðskipti, lántöku o.fl. Ljóst er að hvorki neytendur né oft á tíðum fagaðilar þekkja þau lög og reglur sem vernda neytendur. Neytendastofa vill því vinna markvisst að því að efla þekkingu á lögum á sviði neytendaréttar og á þann hátt stuðla að því að réttindi neytenda séu ávallt virt í viðskiptum þeirra og seljenda vöru og þjónustu.

Öryggi neytenda
Hættulaust umhverfi fyrir líf og heilsu neytenda.
Neytendastofa hefur umsjón með margskonar löggjöf sem ætlað er að tryggja neytendum hættulaust umhverfi og líf án hættu á tjóni á heilsu þeirra. Rafmagn er álitið hættuleg vara sem neytendum stafar þó lítil hætta af, svo framarlega sem gætt er að grundvallarreglum á sviði rafmagnsöryggis, s.s. að rafmagnstæki séu framleidd og markaðssett í samræmi við evrópska staðla og CE-merkt því til staðfestingar. Ýmsar aðrar vörur geta reynst hættulegar eða ekki nægilega öruggar nema þær séu framleiddar í samræmi við viðurkennda evrópska staðla. Sem dæmi má nefna leikföng, byggingavörur og persónuhlífar. Neytendastofa tekur þátt í samstarfi evrópskra eftirlitsstofnana sem starfa að markaðseftirliti með vörum, rafmagnsöryggi o.fl. í þeim tilgangi að vinna að og tryggja öryggi, líf og heilsu neytenda.


Aukaval



Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli