Kvörðunarþjónusta og rekjanleiki
Mælifræðisvið Neytendastofu býður upp á margvíslega þjónustu tengda kvörðunum mælitækja. Með kvörðun er átt við samanburð mælitækis við annað kvarðað og nákvæmara mælitæki eða mæligrunn, sem hefur þekkta eiginleika.
Kvörðun (e.calibration) felur sjaldnast í sér stillingu mælitækis heldur er hún skjalfesting á mælifræðilegum eiginleikum tækisins.
Afar mikilvægt er að kvörðun sé rekjanleg til viðurkenndra mæligrunna, s.s. landsmæligrunna og alþjóðlegra mæligrunna, til að tryggja tengsl mælinganna við aðrar mælingar sem gerðar eru innanlands og erlendis.
Gjald fyrir kvarðanir er reiknað samkvæmt vinnutímagjaldi, efniskostnaði, gjaldi vegna viðhalds faggildingar og hlutdeild í stjórnunarkostnaði.
Kvörðunarþjónusta Neytendastofu er í Borgartúni 21, gengið er inn neðan við húsið. Sjá kort