Rafföng
Ofangreindar reglugerðir eru annars vegar byggðar á lágspennutilskipun Evrópusambandsins, 2006/95/EC(LVD1) um öryggi raffanga og hins vegar tilskipun Evrópusambandsins um rafsegulsamhæfi, 2004/108/EC(EMC2) um rafsegultruflanir. Sömu reglur gilda því að mestu á Evrópska efnahagssvæðinu (EES), sem samanstendur af Evrópusambandinu (ESB), Íslandi, Liechtenstein og Noregi, um þau rafföng sem falla undir tilskipanir ESB og staðfestar hafa verið af sameiginlegu EES-nefndinni.
Framleiðendur og/eða innflytjendur bera ábyrgð á að ákvæðum ofangreindra reglugerða sé fylgt. Faggiltar skoðunarstofur í umboði öryggissviðs Neytendastofu sjá með virku markaðseftirliti til þess að rafföng uppfylli þau skilyrði sem sett eru í reglugerðunum. Markaðseftirlitið fer fram í samræmi við verklagsreglur og skoðunarhandbók Neytendastofu.
Í upplýsingaritinu „Reglur um markaðssetningu raffanga“ er fyrst og fremst fjallað um rafföng sem falla undir ofangreindar tilskipanir ESB (LVD og EMC). Ritið er til leiðbeiningar framleiðendum, innflytjendum og öðrum söluaðilum, það er hvorki tæmandi né lagalega bindandi.
1) LVD (Low Voltage Directive) Tilskipun ráðsins frá 12. desember 2006 um samræmingu aðildarríkjanna um rafföng sem notuð eru innan ákveðinna spennumarka.