Óréttmætir viðskiptahættir

Í lögum um eftirlit með viðskiptaháttum og markaðassetningu nr. 57/2005 er m.a. að finna ýmis fjölbreytt ákvæði um auglýsingar, verðmerkingar, verðkannanir, leiðbeiningar með vöru og þjónustu, skilmála fyrirtækja, ábyrgðaryfirlýsingar, firmanöfn og atvinnuleyndarmál.

Lögin taka til hvers konar atvinnustarfsemi sem hefur eða er ætlað að hafa áhrif hér á landi. Skilyrði fyrir beitingu laganna er því að um atvinnustarfsemi sé að ræða en ekki skiptir máli hvort reksturinn er á vegum einstaklinga, félaga, ríkis eða sveitarfélaga.

Athafnir Neytendastofu í þessum málaflokki stuðla m.a. að því að koma í veg fyrir að neytendum séu veittar rangar, ófullnægjandi eða villandi upplýsingar í auglýsingum og að auðvelda neytendum að fylgjast með verðlagi og efla verðskyn sitt.

Það er Neytendastofu og dómstóla að meta hvaða viðskiptahætti eigi að viðurkenna og hverja ekki og getur Neytendastofa m.a. bannað auglýsingar eða aðra viðskiptahætti og lagt sektir á fyrirtæki.

Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli