Kærunefnd lausafjár- og þjónustukaupa
Aðilar að lausafjár-, þjónustu- og neytendakaupum geta óskað eftir áliti kærunefndar á ágreiningi um réttindi og skyldur samkvæmt lögum nr. 50/2000 um lausafjárkaup, lögum nr. 42/2000 um þjónustukaup og lögum nr. 48/2003 um neytendakaup.
Niðurstöðum kærunefndar verður ekki skotið til annarra stjórnvalda en aðilar geta lagt ágreining sinn fyrir dómstóla með venjulegum hætti.
Kærunefndin er vistuð hjá Neytendastofu, Borgartúni 21, 105 Reykjavík og tekur hún við kvörtunum til nefndarinnar á þar til gerðum eyðublöðum.
Eyðublað - Beiðni um álitsgerð kærunefndar lausafjár- og þjónustukaupa.
Hér er að finna eyðublað sem er ætlað að auðvelda almenningi að koma erindi á framfæri við nefndina ásamt leiðbeiningum um útfyllingu eyðublaðsins. Eyðublaðið ásamt gögnum málsins þarf að berast móttöku Neytendastofu að Borgartúni 21. Þá er einnig í skjalinu að finna upplýsingar um hlutverk og störf kærunefndar. Sækja Eyðublað.
Rafræn málsmeðferð - Einnig er hægt að hefja mál rafrænt með útfyllingu á eyðublaði í rafrænni Neytendastofu. Málsmeðferðin fer þá alfarið í gegnum rafræna Neytendastofu. Þar hefur þú þitt eigið svæði og getur fylgst með framgangi málsins. Með notkun rafrænnar Neytendastofu getur þú brugðist við andsvörum gagnaðila í máli og sent inn gögn rafrænt. Sé þörf á viðbrögðum sendir nefndin þér tölvupóst þess efnis. Rafræna málsmeðferð getur þú hafið hér með nýskráningu, lykilorðið færðu sent í pósti. Þegar lykilorð er komið þá er kvörtunin send til nefndarinnar með því að skrá sig inn í rafræna Neytendastofu.
Nefndina skipa:
Áslaug Árnadóttir, hdl. formaður
Ólafur Reynir Guðmundsson, lögfræðingur, Samtökum verslunar- og þjónustu.
Hildigunnur Hafsteinsdóttir, lögfræðingur, Neytendasamtökunum
Póstfang nefndarinnar er : knefnd@neytendastofa.is
Reglugerð nr. 766/2006 um kærunefnd lausafjár- og þjónustukaupa.