Fjöltenglar

Tilgangur og umfang

Að tryggja skoðun fjöltengla í samræmi við reglugerð um raforkuvirki (rur) með tilliti til:

  •  Gerðar,
  •  frágangs fjöltengla og
  •  notkunar

Fjöltenglar eru sambyggðir tenglar með áfastri lausataug.

Lýsing

Gerð:

Tengilkvísl fjöltengla með hlífðarsnertu, jarðtengisnertu, skal vera þannig gerð að hún komist eingöngu í tengla með hlífðarsnertu, sjá § 203 e) í rur. Fjöltenglar með hlífðarsnertu skulu vera þannig gerðir að tengilkvísl án hlífðarsnertu komist ekki í þá að undanskilinni tengilkvísl þeirrar gerðar sem sérstaklega er gerð fyrir neyslutæki með tvöfaldri einangrun, sjá § 274 b) í rur.

Frágangur:

Fjöltenglar eru notaðir á lausataugar og eru færanlegir.

Notkun:

Takmarka skal notkun fjöltengla eins og kostur er. Eingöngu er leyfilegt að stinga einum fjöltengli í samband við hvern tengil.  Tryggja skal að varnarráðstafanir gegn of hárri snertispennu verði ekki óvirkar, t.d. með framlengingu lausataugar með hlífðarleiði með annarri taug án hlífðarleiðis eða með því að nota taugartengil án jarðtengibúnaðar í slíku tilviki, sjá § 203 l) í rur.

Tilvísanir

Eyðublöð:

  •  LS.BL:202/0398 - Lagnir og tæki neysluveitu.

Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli