Hitatæki

Tilgangur og umfang

Að tryggja skoðun hitatækja í samræmi við reglugerð um raforkuvirki (rur) með tilliti til:

  •  Áletrana,
  •  aðtauga,
  •  frágangs tækja,
  •  hitavarna,
  •  tengingar og
  •  jarðtenginga.

Hitatæki er hvert það tæki sem notað er til að framleiða hita í híbýlum, svo sem þilofnar, blásarar og hitakoddar.

Lýsing

Áletranir:

Tækin eru a.m.k merkt með nafni framleiðanda/seljanda, gerðarmerkingu, þéttleika og helstu málstærðum (spennu, afli), sjá § 271 b) í rur.

Aðtaug:

Sjá skoðunarreglu: "Aðtaugar tækja".

Frágangur tækja:

Fasttengdum hitatækjum (rafmagnsþilofnum og blásurum) skal þannig fyrir komið að ekki sé hætta á skaðlegri hitamyndun á, í eða í námunda við þau, sjá § 278 a) í rur. Ekki má vera hægt að setja straum á hitöld blástursofns án þess jafnframt að setja straum á blásturshreyfil og á sama hátt má ekki vera hægt að rjúfa straum að blásturshreyfli án þess jafnframt að rjúfa straum að hitöldum blástursofnsins, sjá § 278 f) í rur. Hitatæki skulu þannig staðsett að auðvelt sé að komast að þeim til eftirlits og hreinsunar.

Hitavarnir:

Á færanlegum hitatækjum sem ganga stöðugt við fullt álag skal vera yfirhitavörn, sjá § 278 b) í rur. Yfirhitavörn skal ekki geta komið sjálfvirkt inn aftur eftir að hún hefur rofið, sjá Orðsendingu Löggildingarstofu (RER) nr. 2/86.

Tenging:

Tækin eru ýmist laus- eða fasttengd. Laustengd tæki eru með tengilkvísl sem skal hæfa straum- og spennuáraun tækisins. Fasttengd tæki eru t.d. rafmagnsþilofnar og blásarar.

Jarðtenging:

Jarðtengja skal tæki sem gera ráð fyrir slíkri tengingu, sjá skoðunarreglu: "Jarðtenging búnaðar".

Tilvísanir

Eyðublöð:


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli