Áfrýjunarnefnd neytendamála
Ákvarðanir Neytendastofu má kæra til sérstakrar nefndar, áfrýjunarnefndar neytendamála.
Heimild til áfrýjunar er að finna í 4. gr. laga um Neytendastofu og talsmann neytenda, nr. 62/2005.
Skrifleg rökstudd kæra skal berast áfrýjunarnefnd innan fjögurra vikna frá því að aðila máls var tilkynnt um ákvörðun Neytendastofu. Úrskurður áfrýjunarnefndar skal liggja fyrir innan sex vikna frá áfrýjun.
Í áfrýjunarnefnd neytendamála sitja þrír menn og jafn margir til vara, skipaðir af dómsmálaráðherra. Formaður nefndarinnar og varamaður hans skulu fullnægja skilyrðum til að hljóta skipun í embætti héraðsdómara. Áfrýjunarnefnd neytendamála er skipuð þannig:
Aðalmenn:
Eiríkur Jónsson, lektor (formaður)
Egill Heiðar Gíslason, verkefnisstjóri
Eyvindur G. Gunnarsson hrl.
Varamenn:
Ingiríður Lúðvíksdóttir, lögfræðingur (varaformaður)
Eiríkur Hauksson, viðskiptafræðingur
Ólöf Embla Einarsdóttir, lögfræðingur
Skriflegar kærur til áfrýjunarnefndar skulu berast:
Áfrýjunarnefnd neytendamála
Pósthólf 8852
128 Reykjavík
Óskað er að rafrænt afrit kæru sé sent á netfangið afryjunneyt@simnet.is