Málaskráin mín

Neytendastofa auðveldar viðskiptamönnum stofnunarinnar að nálgast upplýsingar og þjónustu með því að opna eigin þjónustugátt svo nefnda neytendagátt. Hér geta viðskiptamenn lagt inn ábendingar og mál til Neytendastofu. Jafnframt er stefnt að því að hún hafi að geyma yfirlit um erindi og stöðu mála sem viðskiptamaður hefur óskað eftir að séu tekin til meðferðar. Með innskráningu á þjónustugátt Neytendastofu fá viðskiptamenn því aðgang að yfirliti um stöðu erinda hjá Neytendastofu.
Auk þess hefur Neytendastofa sett upp nokkrar sérþjónustu síður fyrir einstaka viðskiptamenn stofnunarinnar þ.e. fyrir vigtarmenn og aðgang fyrir orkufyrirtæki til að gera verðbreytingar í reiknivél fyrir samanburð á raforkuverði.
Forsenda þess að unnt er að hafa persónuleg samskipti við stofnunina í gegnum eigin málaskrá er að ný skráning notenda. Að skráningu lokinni geta viðskiptamenn sent inn ábendingu með nafni og átt tölvusamskipti beint við hlutaðeigandi starfsmenn stofnunarinnar. Nýskráningu getur þú gert hér:

Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli