Fara yfir á efnisvæði

Neytendastofa sektar Max raftæki

03.07.2012

Neytendastofa hefur lagt 150.000 kr. stjórnvaldssekt á Max raftæki fyrir skort á upplýsingum í auglýsingum um vaxtalausar raðgreiðslur.

Nokkuð algengt er að verslanir bjóði neytendum að kaupa vörur með raðgreiðslusamningi á kreditkorti. Almennt bera þessir samningar bæði lántökugjöld og vexti en sumar verslanir bjóða samningana án vaxta. Neytendastofa hefur gert kröfu til þess að þegar seljendur auglýsi vaxtalausa raðgreiðslusamninga komi skýrt fram hvert lántökugjald samningsins er.

Neytendastofa gerði athugasemdir við auglýsingar Max um vaxtalausar raðgreiðslur í júlí 2011 og var auglýsingunum breytt í kjölfar þess. Í apríl 2012 varð Neytendastofa vör við að Max hafði aftur breytt auglýsingum sínum þannig að upplýsingar um lántökugjald vantaði. Því var fyrirtækinu gert að greiða stjórnvaldssekt fyrir brot á eldri ákvörðun Neytendastofu.

Neytendur geta sent stofnuninni ábendingar um auglýsingar á vaxtalausum raðgreiðslum án þess að lántökugjald sé tilgreint á rafrænni Neytendastofu, www.rafraen.neytendastofa.is

Ákvörðun Max má lesa í heild sinni hér.

TIL BAKA