Fara yfir á efnisvæði

Námskeið vigtarmanna 3 – 5 júní.

15.05.2013

Neytendastofa mun daganna 3 – 5 júní standa fyrir almennu námskeiði fyrir vigtarmenn. Námskeiðið fer fram í húsakynnum Neytendastofu að Borgartúni 21, 105 Reykjavík. Námskeiðið veitir þeim sem ljúka því réttindi til að starfa sem löggildir vigtarmenn.

Grunnur námskeiðanna byggir á að fara yfir lög og reglugerðir, t.d á vegum Neytendastofu lög nr. 91/2006 um mælingar, mæligrunna og vigtarmenn, reglur um almennt og sérstakt hæfi löggiltra vigtarmanna og reglugerð um löggildingarskyldu mælitækja í notkun. Jafnframt reglugerð um mælifræðilegt eftirlit með ósjálfvirkum vogum, reglugerð um löggildingartákn og merkingar eftirlitsskyldra mælitækja.  Auk þess reglugerð um ósjálfvirkar vogir, reglugerð um mælieiningar. Sérstök áhersla er svo einnig lögð á efni tengt vigtun sjávarafla. Leiðbeinendur starfa hjá Neytendastofu, Löggildingu og Fiskistofu.

Námskeiðin eru haldin þrisvar sinnum á ári og verður næsta námskeið haldið í október 2013.

Á heimasíðu Neytendastofu er hægt að fá nánari upplýsingar um inntökuskilyrði á námskeiðin ásamt öðrum upplýsingum. 

TIL BAKA