Fara yfir á efnisvæði

Ákvæði í skilmálum smartshop.is brot á lögum

04.04.2014

Neytendastofu barst kvörtun frá Neytendasamtökunum vegna skilmála á vefversluninni smartshop.is. Kvörtunin snéri að því að skilmálar vefverslunarinnar væru ekki í samræmi við lög.

Samkvæmt skilmálum Smartshop gátu neytendur ekki fengið endurgreitt ef þeir hættu við kaup heldur stóð þeim einungis til boða að fá inneign gegn framvísun kvittunar. Ef vörur væru sérpantaðar höfðu neytendur engan rétt til að skila vörunni. Þá var neytendum lofað ábyrgð á vörum í eitt ár en þurftu að greiða sérstaklega fyrir tveggja ára ábyrgð.

Neytendur eiga alltaf fjórtán daga rétt til að hætta við kaup og falla frá samningi. Neytendur sem nýta sér þennan rétt sinn eiga að fá vöruna endurgreidda að fullu. Þá eiga neytendur einnig rétt á að kvarta yfir galla í vörum í allt að tvö ár eftir að kaup eiga sér stað.

Neytendastofa hefur því tekið ákvörðun um að Smartshop eigi að breyta skilmálum sínum og að upplýsa neytendur um skilarétt sinn ásamt því að lengja almennan frest til að bera fyrir sig galla í tvö ár. Verði það ekki gert innan tveggja vikna má búast við að tekin verði ákvörðun um sektir.

Ákvörðunina má lesa í heild sinni hér.

TIL BAKA