Fara yfir á efnisvæði

Neytendastofa sektar 21 matvöruverslun

08.04.2014

Neytendastofa hefur sektað sex rekstraraðila matvöruverslana fyrir að fara ekki að fyrirmælum stofnunarinnar um að bæta verðmerkingar. Voru verslanirnar sektaðar um samtals 5.750.000 kr.

Í verðmerkingareftirliti Neytendastofu í matvöruverslunum er kannað hvort vörur séu verðmerktar bæði með söluverði og með einingarverði auk þess sem farið er yfir hvort verð á hillu sé rétt. Þá er skoðað sérstaklega hvernig verðmerkingum með notkun verðskanna er háttað.

Neytendastofa gerði athugasemdir við verðmerkingar í flestum þeirra matvöruverslana sem skoðaðar voru og þegar skoðuninni var fylgt eftir höfðu 21 verslun, í eigu sex fyrirtækja, ekki enn gert fullnægjandi umbætur á verðmerkingum. Í flestum verslunum voru gerðar athugasemdir við að einingarverð vantaði en einnig var nokkuð um ómerktar eða vitlaust verðmerktar vörur. Í einni verslun voru gerðar athugasemdir við að fjölga þyrfti verðskönnum.

Skylda til að verðmerkja söluvörur með söluverði og einingarverði er mjög skýr og því hefur Neytendastofa nú gripið til þess að leggja stjórnvaldssekt á þau sex fyrirtæki sem ekki höfðu lagað verðmerkingar sínar. Það eru fyrirtækin 10-11, Hagkaup, Kostur, Krónan, Plúsmarkaðurinn og Samkaup.

Ákvarðanirnar má finna hér.

TIL BAKA