Fara yfir á efnisvæði

Seinni heimsókn Neytendastofu í efnalaugar

23.04.2014

Í mars sl. heimsótti fulltrúi Neytendastofu efnalaugar höfuðborgarsvæðisins í þeim tilgangi að athuga hvort verðskrár yfir alla framboðna þjónustu væru í samræmi við lög og reglur. Þessum heimsóknum var svo fylgt eftir núna í apríl.
Farið var í Þvottahúsið Faghreinsun, Fatahreinsun Kópavogs og Efnalaugina Geysi, öll höfðu þessi fyrirtæki fengið tilmæli frá Neytendastofu um að koma verðmerkingum í betra horf. Þvottahúsið Faghreinsun var eina efnalaugin sem enn hafði enga verðskrá til sýnis. Stofnunin mun í framhaldinu taka ákvörðun um hvort beita skuli Þvottahúsinu Faghreinsun sektarákvæðum fyrir að virða að vettugi tilmæli og ábendingar Neytendastofu um úrbót á ástandi verðmerkinga.

TIL BAKA