Fara yfir á efnisvæði

Verðmerkingar í pósthúsum kannaðar

27.05.2014

Neytendastofa gerði könnun á ástandi verðmerkinga í pósthúsum á höfuðborgarsvæðinu. Farið var í 10 pósthús og kannað hvort verðlisti yfir helstu þjónustuliði væri til staðar og hvort söluvara væri verðmerkt. Verðlisti var á öllum stöðum en gerð var athugasemd við tvö pósthús, Póstinn Stórhöfða og Póstinn Dalvegi þar sem vantaði verðmerkingar á gos í kæli, sælgæti, bækur og fl.

Ástæðan fyrir því að svo mikilvægt er að verð sé á vörunni sjálfri eða við hana er sú að einungis þannig geta neytendur auðveldlega áttað sig á samhenginu á milli vöru og verðs. Þannig verður verðmerking á hillu alltaf að vera alveg við vöruna og eins nálægt henni og mögulegt er þegar verðmerkt er með skilti eða verðlista.

Fulltrúar Neytendastofu munu svo fylgja þessari könnun eftir með annarri eftirlitsferð þar sem skoðað verður hvort tilefni er til að beita sektum.

Stofnunin hvetur neytendur til að vera á verði og koma ábendingum til skila í gegnum rafræna neytendastofu á vefslóðinni www.neytendastofa.is.

TIL BAKA