Fara yfir á efnisvæði

Vogir í verslunum

30.06.2014

Mikilvægt er fyrir neytendur að geta treyst því að mælingar séu réttar og að löggilding mælitækja sé í gildi. Vogir sem vigta undir 100 kg og notaðar eru til að selja vörur til neytenda eiga að hafa sýnilegar upplýsingar um vigtunina. Neytendur eiga að geta séð greinilega útreikning verðs á þeirri vöru sem keypt er. Þetta þýðir m.a. að neytendur eiga að geta séð greinilega á skjá niðurstöður vigtunar við búðarkassavogir og við afgreiðslu úr fisk- og kjötborðum. 

Á árinu 2013 voru skoðaðar og löggiltar 640. Af þeim 640 vogum sem skoðaðar voru þurfti að endurstilla 186 þeirra við löggildinguna. Það er hagur neytenda að skoða hvort viðkomandi vog sem verið er að nota sé með gilda löggildingu. Þá á löggildingarmiðinn að vera sýnilegur fyrir neytendur.

TIL BAKA