Fara yfir á efnisvæði

Bauhaus innkallar uppblásna heita potta

14.08.2014

Í kjölfar ábendingar frá Neytendastofu hefur Bauhaus innkallað uppblásna heita potta af gerðinni Mspa – Oriental

Recreational. Týpurnar sem Bauhaus innkallar eru Silver cloud B-110, Square pearl B-090 og Black pearl. En innkallaðar eru allar gerðir af uppblásnum pottum sem Bauhaus hefur selt frá maí 2012 til dagsins í dag.

Ástæða innköllunarinnar er hætta á raflosti og drukknun.

Viðskiptavinir sem eiga potta sem innköllunin nær til eru beðnir um að hafa samband við Bauhaus 

TIL BAKA