Fara yfir á efnisvæði

Ákvörðun Neytendastofu staðfest

26.11.2014

Áfrýjunarnefnd neytendamála hefur staðfest ákvörðun Neytendastofu um að smálánafyrirtækin Kredia og Smálán hafi brotið gegn lögum um neytendalán með innheimtu kostnaðar fyrir flýtiafgreiðslu lánshæfismats.

Í júní sl. tók Neytendastofa ákvarðanir gagnvart öllum smálánafyrirtækjum þar sem stofnunin komst að þeirri niðurstöðu að gjald fyrir flýtiafgreiðslu teldist hluti af heildarlántökukostnaði og skyldi því taka tillit til þess við útreikning árlegrar hlutfallstölu kostnaðar (ÁHK). Samkvæmt lögum um neytendalán má ÁHK ekki vera hærra en 50% að viðbættum stýrivöxtum en með því að gjald fyrir flýtiafgreiðslu sé innifalið í ÁHK verður hún mun hærri.

Fyrirtækin kærðu ákvarðanir til áfrýjunarnefndar neytendamála sem hefur nú staðfest ákvörðun Neytendastofu gagnvart Kredia og Smálánum. Úrskurður gagnvart Neytendalán ehf. sem rekur Hraðpeninga, Múla og 1909 liggur ekki fyrir enn.

Úrskurðinn má lesa í heild sinni hér.

TIL BAKA