Fara yfir á efnisvæði

Skrifað undir árangursstjórnunarsamning Neytendastofu og innanríkisráðuneytis

27.03.2015

Fréttamynd

Ólöf Nordal innanríkisráðherra og Tryggvi Axelsson, forstjóri Neytendastofu, skrifuðu í gær undir árangursstjórnunarsamning ráðuneytisins og Neytendastofu. Samningurinn er til fimm ára og er tilgangur hans að festa í sessi ákveðið samskiptaferli aðila og skerpa áherslur um stefnumótun, framkvæmd verkefna og áætlunargerð.

Í samningnum er hlutverk Neytendastofu rakið eins og það er skilgreint í lögum um stofnunina. Eru meginhlutverkin tekin saman í eftirtalda flokka:

• Gæta að og hafa eftirlit með neytendarétti og öryggi vöru.
• Hafa eftirlit með viðskiptaháttum og stuðla að gagnsæi markaðarins.
• Yfirumsjón með lögmælifræði og hagnýtri mælifræði og framkvæmd sem að því lýtur.
• Miðla upplýsingum til aðila á markaði um réttindi þeirra og skyldur.

Þá eru taldar upp áherslur og megin markmið varðandi starfsemi stofnunarinnar á samningstímanum og er þar meðal annars fjallað um stjórnsýslu, þjónustu, mannauð og gæðamál. Einnig eru taldar upp gagnkvæmar skyldur beggja aðila.

TIL BAKA