Fara yfir á efnisvæði

Toyota innkallar 2249 bifreiðar

28.10.2015

Lógó toyotaNeytendastofu hefur borist tilkynning frá Toyota á Íslandi að innkalla þurfi 2249 Yaris, Corolla, Auris, Rav4, Urban Cruiser bifreiðar af árgerðum frá 2005-2010. Ástæða innköllunarinnar er að stirðleiki er í hnöppum í stjórnborði fyrir rúðu upphalara í bílstjórahurð. Rofarnir sem hnapparnir stýra þurfa að leiða mikinn straum og hitna þar af leiðandi töluvert. Ef reynt er að smyrja stirða hnappa með venjulegum smurefnum eins og WD40 eða Würth 2000 sem ekki eru hitaþolin getur myndast reykur og jafnvel kviknað í þeim. Toyota mun smyrja rofana með sérstakri hitaþolinni feiti og ef stirðleiki eða sviðnun finnst í rofa verður skipt um stjórnborðið.

Eigendum verða send bréf vegna þessarar innköllunar.

TIL BAKA