Fara yfir á efnisvæði

Bernhard innkallar 414 Honda Jazz bifreiðar

17.11.2015

Vörumerki HondaNeytendastofu hefur borist tilkynning frá Bernhard ehf að innkalla þurfi 414 Honda Jazz bifreiðar af árgerðinni 2004-2006. Ástæða innköllunar er að við árekstur þegar loftpúðar farþega- og /eða bíltjóramegin þenjast út geta hugsanlega vegna óeðlilegs innri þrýstings í púðunum borist agnir úr umgjörð þeirra inn í farþegarými og í versta falli valdið meiðslum á farþegum. Skipta þarf um loftpúða farþega- og/eða bílstjóramegin.

Eigendur fá boðun bréflega í byrjun desember 2015.

TIL BAKA