Fara yfir á efnisvæði

Áfrýjunarnefnd bannar lénið heklacarrental.is

30.11.2015

Neytendastofa komst að þeirri niðurstöðu að banna Guðmundi Hlyni Gylfasyni ekki að nota lénið heklacarrental.is þar sem lénið væri ekki notað í atvinnustarfsemi og engin atvinna rekin undir léninu. Þá teldi stofnunin ekki hættu á að neytendur villist á léninu og auðkennum Heklu hf.

Í úrskurði áfrýjunarnefndar kemur fram að fordæmi séu fyrir því hjá áfrýjunarnefndinni að banna fyrirhugaða notkun léna, sem ekki sé þegar hafin, ef ljóst sé að slík notkun myndi brjóta gegn góðum viðskiptaháttum svo hætt verði að neytendur ruglist á auðkennunum.

Áfrýjunarnefndin taldi augljósa hættu á ruglingi milli starfsemi og auðkenna Heklu hf. og heklacarrental.is. Þrátt fyrir að ekki lægi fyrir skýr afstaða eiganda lénsins um markmið með skráningu lénsins verði að telja að í ljósi þess að lénið vísi til reksturs bílaleigu og í ljósi tengsla eiganda þess við rekstur bílaleiga verði að telja að fyrirhuguð notkun brjóti gegn rétti Heklu hf.

Ákvörðun Neytendastofu var því felld úr gildi og Guðmundi Hlyni Gylfasyni bönnuð notkun lénsins og honum gert að afskrá það.

Úrskurð áfrýjunarnefndar í máli nr. 9/2015 má lesa í heild sinni hér.

TIL BAKA