Fara yfir á efnisvæði

BL ehf innkallar BMW bifreiðar

10.05.2016

Lógó BLNeytendastofu hefur borist tilkynning frá BL ehf. um innköllun á 95 BMW bifreiðum árgerð sept 2007 - mars 2011, af tegundunum E8x E9x E60 E61 N43. Ástæða innköllunarinnar er að komið hefur upp hjá gæðaeftirliti BMW að þrýstingur á bremsukút hefur minnkað á lífstíma bílsins og þar af leiðandi ekki náð fullum afköstum til að ná hámarks bremsukrafti. Það þarf þá að stíga fastar á bremsupedalan til að bremsa. Af öryggisástæðum hefur BMW ákveðið að innkalla þá bíla sem þetta á við.

BL ehf mun hafa samband við bifreiðareigendur vegna þessarar innköllunar.

TIL BAKA