Fara yfir á efnisvæði

Námskeið til löggildingar vigtarmanna verður haldið 6. - 8. júní

23.05.2016

Neytendastofa mun daganna 6. - 8. júní standa fyrir almennu námskeiði til löggildingar vigtarmanna. Námskeiðið fer fram í húsakynnum Neytendastofu að Borgartúni 21, 105 Reykjavík. Námskeiðið veitir þeim sem ljúka því réttindi til að starfa sem löggildir vigtarmenn.

Grunnur námskeiðanna byggir á að fara yfir lög og reglugerðir, t.d á vegum Neytendastofu lög nr. 91/2006 um mælingar, mæligrunna og vigtarmenn, reglur um almennt og sérstakt hæfi löggiltra vigtarmanna og reglugerð um löggildingarskyldu mælitækja í notkun. Jafnframt reglugerð um mælifræðilegt eftirlit með ósjálfvirkum vogum, reglugerð um löggildingartákn og merkingar eftirlitsskyldra mælitækja og reglugerð um ósjálfvirkar vogir, reglugerð um mælieiningar. Sérstök áhersla er svo einnig lögð á efni tengt vigtun sjávarafla. Leiðbeinendur starfa hjá Neytendastofu og Fiskistofu.

Námskeiðin eru haldin þrisvar sinnum á ári og verður næsta námskeið haldið í október 2016. Eins verður endumenntunarnámskeið vigtarmanna haldið í byrjun október.

Á heimasíðu Neytendastofu er hægt að fá nánari upplýsingar um inntökuskilyrði á námskeiðin ásamt öðrum upplýsingum.

Hægt er að skrá sig á námskeiðið á heimasíðu Neytendastofu

TIL BAKA