Fara yfir á efnisvæði

Kvennafrídagurinn í dag

24.10.2016

Neytendastofa mun loka í dag mánudaginn 25. október klukkan 14:38 til að taka þátt í samstöðufundi á Austurvelli, kl 15:15. Við viljum vekja athygli á að bæði afgreiðsla og símsvörun er lokuð frá kl. 14:30.

Hægt er að senda ábendingar í gegn um mínar síður á heimasíðu Neytendastofu.

Í auglýsingu um kvennafrí 2016 segir eftirfarandi:
„Meðalatvinnutekjur kvenna eru 70,3% af meðalatvinnutekjum karla. Konur eru því með 29,7% lægri tekjur að meðaltali. Samkvæmt því hafa konur unnið fyrir sínum launum eftir 5 klukkustundir og 38 mínútur miðað við fullan vinnudag frá kl. 9–17. Daglegum vinnuskyldum kvenna er því lokið kl. 14:38.

Þann 24. október árið 1975 lögðu konur um allt land niður vinnu til að sýna fram á mikilvægi vinnuframlags kvenna fyrir þjóðfélagið. Árið 2005 héldum við upp á kvennafrídaginn í annað sinn og konur gengu í tugþúsunda talið útaf vinnustað á þeirri mínútu þegar þær hættu að fá borgað fyrir störf sín miðað við karla. Þá gengu konur út klukkan 14:08. Árið 2010 gengu konur út klukkan 14:25. Nú göngum við út klukkan 14:38. Við höfum grætt hálftíma á ellefu árum. Tæplega þrjár mínútur á hverju ári. Með þessu áframhaldi þurfum við að bíða í 52 eftir að hafa sömu laun og sömu kjör og karlar, til ársins 2068! Það er óásættanlegt!

Fylgstu með á www.kvennafri.is og facebook.com/kvennafri. Taktu þátt í samræðunum á Twitter undir myllumerkinu #kvennafrí og #jöfnkjör, og fylgdu okkur á @kvennafri.“

TIL BAKA