Fara yfir á efnisvæði

IKEA innkallar MYSINGSÖ strandstól vegna slysahættu

24.01.2017

FréttamyndNeytendastofu hefur borist tilkynning frá Ikea vegna innköllunar á strandstól. Eftir að áklæðið hefur verið tekið af til að þvo það, er hægt að setja það aftur á með röngum hætti þannig að það skapi hættu á að stóllinn gefi sig eða að notandi klemmist. IKEA hafa borist fimm tilkynningar um MYSINGSÖ stóla sem hafa tengst óhöppum eftir að hafa verið settir saman á rangan hátt. Í öllum fimm tilvikum slasaðist fólk á fingrum. Þessi tilvik gerðust í Finnlandi, Þýskalandi, Bandaríkjunum, Danmörku og Ástralíu. Ráðist var í umfangsmiklar rannsóknir eftir að tilkynningarnar bárust. Þessar rannsóknir leiddu til umbóta í hönnun til að koma í veg fyrir að mögulegt sé að setja stólinn rangt saman. Uppfærður stóll verður fáanlegur í IKEA verslunum frá apríl 2017. IKEA hvetur viðskiptavini sem hafa keypt MYSINGSÖ strandstól til að koma með hann í verslunina og fá endurgreiddan að fullu. Ekki er nauðsynlegt að sýna kvittun til að fá stólinn endurgreiddan. Nánari upplýsingar má nálgast á www.IKEA.is eða í þjónustuveri í síma 520 2500.

TIL BAKA