Fara yfir á efnisvæði

Toyota innkallar 314 Toyota Hilux

25.08.2017

Lógó toyota

Neytendastofu hefur borist tilkynning um að Toyota muni innkalla 314 Toyota Hilux á Íslandi framleidda á tímabilinu apríl 2016 til febrúar 2017. Ástæða innköllunarinnar er að möguleiki er á að í einstaka bílum geti festing sem heldur rafleiðslum aftan við stýrisöxul verið laus. Sé festingin laus er möguleiki að rafleiðslurnar nái að rekast utan í stýrisöxulinn og þegar stýri er snúið valdi það skemmdum á þeim, sem í versta mögulega tilfelli, getur orsakað að vélin drepi á sér. Bílarnir verða kallaðir inn og ísetning rafleiðslanna kannað. Í bílum sem greinast með lausa festingu verður festing rafleiðslanna tryggð og rafleiðslur lagfærðar eða endurnýjaðar eftir atvikum gerist þess þörf, eigendum að kostnaðarlausu.

Toyota á Íslandi mun hafa samband við viðeigandi bifreiðaeigendur.

Neytendastofa hvetur bifreiðaeigendur til að fylgjast vel með hvort að verið sé að innkalla þeirra bifreiðar og hafa samband við næsta viðurkennda þjónustustuaðila Toyota ef þeir eru í vafa.

TIL BAKA