Fara yfir á efnisvæði

BL ehf. Innkallar Hyundai bifreiðar

01.09.2017

Lógó BLNeytendastofu hefur borist tilkynning frá BL ehf. varðandi innköllun á 269 Hyundai bifreiðum. Um er að ræða Santa FE bifreiðar framleiddar á árnunum 2012-2016. Ástæða innköllunarinnar er sú að á sumum bílum virkar neyðar húddlás illa vegna stirðleika í vír sem gæti orsakað að hann virki ekki sem skildi ef bíll er keyrður með opið húdd.

Viðkomandi bifreiðareigendur munu fá sent bréf vegna þessarar innköllunar á næstu dögum.

Neytendastofa hvetur bifreiðaeigendur til að fylgjast vel með hvort að verið sé að innkalla þeirra bifreiðar og hafa samband við BL.

TIL BAKA