Fara yfir á efnisvæði

Hagkaup innkallar Ty marglita mjúkdýr

14.12.2017

Fréttamynd

Neytendastofu vekur athygli á innköllun á hjá Hagkaup á Ty marglita mjúkdýr sem lítur út eins og púddluhundur. Komið hefur fram galli í saumum á Ty mjúkdýrinu samanber mynd (The Beanie Boo´s collection/rainbow). Galli þessi getur valdið því að fóður „fylling“ getur losnað úr leikfanginu og valdið skaða. Varan uppfyllir því ekki þær kröfur sem í gildi eru hér á landi. Því vill Hagkaup beina því til viðskiptavina sinna sem keypt hafa fyrrgreint mjúkdýr að þeir geti skilað þeim í næstu Hagkaupsverslun og fengið vöruna endurgreidda eða fengið að skipta í nýtt mjúkdýr.

Hagkaup hefur nú þegar tekið vöruna úr sölu í verslunum sínum.

Umrædd vara hefur módel-númerið 1216/15626.

TIL BAKA