Fara yfir á efnisvæði

Ákvörðun Neytendastofu staðfest

14.03.2018

Neytendastofa lagði stjórnvaldssekt að fjárhæð 1 milljón á Tölvutek fyrir að brjóta eldri ákvörðun stofnunarinnar. Málið snéri að fullyrðingu um að Tölvutek sé stærsta tölvuverslun landsins. Með fyrri ákvörðun Neytendastofu komst stofnunin að þeirri niðurstöðu að Tölvutek væri heimilt að birta fullyrðinguna ef fram kæmu þær skýringar að átt væri við stærð verslunarrýmis. Tölvutek birti skýringarnar ekki í öllum auglýsingum og því sektaði Neytendastofa fyrirtækið. Þá var fullyrðing Tölvutek um betra verð bönnuð þar sem verslunin sýndi ekki fram á réttmæti hennar.
Tölvutek kærði ákvörðunina til áfrýjunarnefndar neytendamála sem hefur nú staðfest hana með úrskurði nr. 6/2017.
Úrskurðinn má lesa í heild sinni hér.

TIL BAKA